Á námskeiðinu er kynntur fjöldi tegunda trjáa og runna sem þrífast á Íslandi. Kennt verður að meðhöndla fræ, sá og taka vetrar- og sumargræðlinga. Farið er yfir jarðvegsgerðir, áburðarþörf, sjúkdóma og skordýr sem hrjá tré og runna og lausnir gegn þeim. Val á trjám og runnum við mismunandi aðstæður og samplantanir kynntar.
Námskeiðið er 3 klst í staðnámi og 90 mín í fjarnámi. Boðið upp á léttar veitingar og vönduð námsgögn fylgja.
Gildir fyrir einn í staðnámi eða tvo í fjarnámi.
Upplifunin er hluti af Námskeið Óskaskríninu
Kennari: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og ritstjóri Sumarhússins og garðsins.
Sumarhúsið og Garðurinn
Fossheiði 1
Selfossi
Best er að hafa samband varðandi næstu námskeið.
Auður allt árið stendur fyrir ótal námskeiðum í garðyrkju. Námskeiðin eru haldin í sýningagarði og gróðurhúsum Sumarhússins og garðsins í Fossheiði 1 á Selfossi.