Upplifðu söguna!
Sýningin 1238 - Baráttan um Ísland er gagnvirk og alltumlykjandi sem færir þig mun nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar. Með hjálp nýjustu tækni í miðlun og sýndarveruleika bjóðum við þér að taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar og beinlínis stíga inn í sögu Sturlungaaldar. Sýningin sviðsetur frægustu atburði Sturlungaaldarinnar (1220 – 1264); blóðugasta og afdrifaríkasta tímabilinu í sögu Íslands þar sem ættar- og höfðingjaveldi börðust í allsherjar borgarastyrjöld sem lauk með því að Íslendingar glötuðu sjálfstæðinu.
Upplifunin er hluti af Baula Óskaskríninu
Sýndarveruleiki leikur stórt hlutverk í sýningunni. Í gegnum „augmented reality“ (viðbótarveruleiki) stígur þú inn í söguna, aftur til fortíðar. Þar getur þú upplifað og tekið þátt í stærsta bardaga Íslandssögunnar, Örlygsstaðabardaga sem var upphafið að endalokum sjálfstæðis Íslendinga.
1238 Baráttan um Ísland
Aðalgötu 21
550 Sauðárkróki
Sími: 588 1238
Opið daglega frá 10:00 - 17:00