Regndropameðferðin er ljúf og á sama tíma öflug Ilmkjarnaolíumeðferð.
Í himneskri fótasælu áttu von á yndislegu dekri uppað hnjám með hreinum Ilmkjarnaolíum.Saman skapar ilmurinn, ættaður beint frá móður jörð, og ljúft nuddið dásemdar slakandi upplifun.
Upplifunin er hluti af Eðal Dekur Óskaskríninu
Hið Nýja Líf hóf starfsemi í október 2015 Megin markmið starfseminnar er að draga úr streitu og stressi hjá fólki, auka vellíðan og innra jafnvægi.
Frá upphafi hefur Hið Nýja Líf boðið uppá opna tíma í slökun, námskeið þar sem unnið er með innra jafnvægi og slakandi meðferðir með ilmkjarnaolíum.
Sigríður Helgadóttir eigandi Hið Nýja Líf hefur unnið við Heilun síðan 2001 og lauk námi í Heilsumeistaraskóla Íslands 2014 Slagorð Hið Nýja Líf er Frá Streitu til Slökunar.
Meðferðir eru til húsa í Brekkugötu 5b Akureyri
eftir samkomulagi