Kynntar verða hugmyndir að nýstárlegum borðskreytingum. Efniviðurinn sem unnið er úr er náttúrulegur, stál og steypa. Nemendur læra handtökin og ótal trix við gerð aðventu- og jólaskreytinga.
Námskeiðið er 3 klst í staðnámi, 90mín í fjarnámi. Boðið upp á léttar veitingar og vönduð námsgögn fylgja.
Gildir fyrir einn í staðnámi eða tvo í fjarnámi.
Upplifunin er hluti af Námskeið Óskaskríninu
Auður allt árið stendur fyrir ótal námskeiðum í garðyrkju. Námskeiðin eru haldin í sýningagarði og gróðurhúsum Sumarhússins og garðsins í Fossheiði 1 á Selfossi.
Kennarar: Petra Stefánsdóttir blómaskreytir og Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur og ritstjóri Sumarhússins og garðsins.
Sumarhúsið og Garðurinn
Fossheiði 1
Selfossi
Best er að hafa samband varðandi næstu námskeið.