Náttúruboðin bjóða fyrst og fremst upp á að upplifa hina einstöku gufu beint yfir gufuhvernum fræga sem heimamenn og gestir hafa nýtt til heilsubaða að minnsta kosti síðan 1929. Auk þess er unnt að baða sig í heilsubaðvatni í þrískiptri baðlaug, dvelja í heitu sánubaði, ganga í volgum sandinum, dýfa sér í Laugarvatnið sjálft frá bryggju eða slaka á í fallegum garðinum. Jafnframt gefur dvöl í böðunum ávallt tækifæri til að skynja hina síbreytilegu íslensku veðráttu og njóta fjallasýnar.
Upplifunin er hluti af Baula Óskaskríninu
Frá náttúrunnar hendi er umverfi Laugarvatns Fontana við norðanvert Laugarvatn einstakt þar sem jarðvarminn kraumar. Í austri blasir fjallahringurinn við með Heklu, Hestfjalli, Vörðufelli og Eyjafjallajökul í hásæti.
Laugarvatn Fontana
Hverabraut 1
840 Laugarvatn
Laugarvatn Fontana er opið föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá 12:00-21:00.