Hádegishlaðborðið okkar nýtur sífellt meiri vinsælda. Þar er á boðstólum gnægð kaldra grænmetisrétta og salöt, heit súpa og ilmandi nýbakað brauð. Á fimmtudögum er svo alltaf einn heitur réttur. Í Borganesi er Landnámssetur Íslands þar sem sögusviðið er Egilssaga. Hér eru tvær sýningar þar sem landnámssaga er rakin og söguþráður Egilssögu tekur á sig áþreifanlega mynd. Á landnámssýningunni er notast við sjónvarpsskjái, gagnvirk kort og hægt að stíga í stefni á víkingaskipi sem hreyfist. Egilssýning er í niðurgröfnum steinkjallara gamla pakkhússins og sett fram með dulúð og draugalegum myndum eftir marga listamenn, unnum í tré.
Upplifunin er hluti af Bröns fyrir tvo Óskaskríninu
Landnámssetrið
Brákarbraut 13-15,
310 Borgarnes
Á borðum alla daga frá kl. 11:30 til 15:00.
Landnámssetrið
Brákarbraut 13-15,
310 Borgarnes
Sími: 437-1600
[email protected]
www.landnam.is