Klambrar bistro er staðsett í einni af einstökustu byggingum íslenskrar byggingarlistar, Kjarvalsstöðum. Tengingin við náttúruna á Klambratúni og listsköpun Jóhannesar S. Kjarvals veitir þeim sterkan innblástur í eldhúsinu. Það er dásamlegt að rölta um túnið eða fara í skoðunarferð um einhverja af þeim sýningum sem húsið býður upp á hverju sinni og ljúka ferðinni með máltíð á Klömbrum bistro.
Klambrar bistro leggur mikla áherslu á fersk og skemmtileg hráefni í matargerð sinni sem er undir skandinavískum áhrifum.
Ekki er nauðsynlegt að kaupa aðgangsmiða á sýningar á Kjarvalsstöðum til að setjast niður og njóta veitingastaðarins.
Klambrar Bistrø
Kjarvalsstöðum
Flókagata 24
105 Reykjavík
Dögurðurinn er framreiddur allar helgar frá 10-17.
Klambrar Bistrø
Kjarvalsstöðum
Sími: 411- 6425
www.klambrarbistro.is