Hótel Kría er glæsilegt hótel í Vík í Mýrdal. Það er staðsett í töfrandi umhverfi þar sem stutt er í íslenska náttúru, m.a. Reynisfjöru og Dyrhólaey. Í nágrenninu er mikið um skemmtilega afþreyingu en þar má finna golfvöll, góða sundlaug, zipplínu ævintýri, skemmtilegar hjólaleiðir og margt fleira. Veitingastaðurinn Drangar býður upp á úrvals matseðil þar sem ferskt íslenskt hráefni er í lykilhlutverki.
Upplifunin er hluti af Góða Helgi Óskaskríninu
Vík í Mýrdal einkennist af einstakri náttúru þar sem jöklar, svartar strendur og grænar hlíðar mætast.
Vinsamlegast tilgreinið númer Óskaskríns þegar þið bókið herbergi.
Hótel Kría
Sléttuvegi 12-18
Vík í Mýrdal
Hótelið er opið allan ársins hring en þetta Óskaskrín gildir ekki í júní, júlí, ágúst og um jól og áramót.