Hótel Bifröst er notalegt hótel á fallegum stað í hjarta Borgarfjarðar. Hótelið er staðsett við þjóðveg 1 - 102 kílómetra frá Reykjavík og því í aðeins eins- og hálfs tíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Upplifunin er hluti af Rómantík Óskaskríninu
Hótel Bifröst er staðsett í Norðurárdal í Borgarfirði. Eldstöðin Grábrók, Hreðavatn, Jafnaskarðsskógur, Paradísarlaut, Norðurá og fossinn Glanni eru í næsta nágrenni og yfir landinu trónir Baula, eitt tignarlegasta fjall landsins.
Margar skemmtilegar gönguleiðir er að finna í nágrenni Bifrastar. Umhverfið er afar fjölbreytt og býður upp á marga möguleika. Þræða má krákustíga í hrauninu eða rölta meðfram Norðuránni, fara í skógargöngu í Jafnaskarðsskóg,
Hótelið er á Bifröst í Borgarfirði, um 30 km norður af Borgarnesi, staðsett við þjóðveg 1.
Hótelið er opið allt árið en Óskaskrín þetta gildir ekki frá 1.júlí til 30.september.