Frábærlega skemmtileg flúðasigling niður Hvítá sem fléttar saman fjöri og náttúrufegurð. Siglingin er um 60-90 mínútur, fer eftir vatnsmagni.
Flúðasigling fyrir tvo ásamt hamborgaramáltíð á veitingastaðnum. Með fylgir aðgangur að heitum pottum og nýrri finnskri saunu.
Upplifunin er hluti af Katla Óskaskríninu
Arctic Rafting er lítið sveitafyrirtæki sem sérhæfir sig í flúðasiglingum. Mikið er lagt uppúr öryggisstöðlum og hafa allir leiðsögumenn lokið námskeiðum hjá International Rafting Federation (IRF) aum straumvatnsbjörgunarnámskeiðs (SWR).
Mikilvægt að taka með sér aukaföt og handklæði
Arctic Rafting
Drumboddsstaðir River Base
806 Selfoss
Ferðavertíðin á flúðasiglingum byrjar í maí og lýkur í lok september á ári hverju.