Skemmtileg klukkustundar samvera með hestum fyrir alla fjölskylduna. Við fræðumst um hrossin, kembum þeim, setjum hnakkinn á, skellum okkur aðeins á bak inn í reiðskemmu og eigum skemmtilega og fróðlega stund með hestunum okkar. Upplifunin er sniðin að öllum aldri og ólíkum getustigum.
Upplifunin er hluti af Hekla Óskaskríninu
Takmark okkar er að fjölskyldan eigi skemmtilegan dag saman og njóti öryggis og nærveru með indælu hestunum okkar.
Langhús horse tours
Langhúsum
570 Fljótum
Sími: 847 8716
Flesta daga sumarsins