Opna - Velja - Njóta

Gildir fyrir:

Ævintýri á Vatnajökli skoðunarferð fyrir tvo

Óskaskrín

Ævintýri á Vatnajökli skoðunarferð

Ævintýri á Vatnajökli er  yfirgripsmikil jöklagnaga sem er fullkomin fyrir þá sem hafa gaman að gönguferðum og njóta þess að vera úti í náttúrunni. Hér færðu að njóta mikillar nálægðar við stórkostlegt ísfall Falljökuls sem er einn margra skriðjökla Vatnajökuls. Lengd ferðarinnar eru 4 klukkustundir. 

Keyrt á ofurjeppa að jökulröndinni, við jaðarinn hefst ganga á mannbroddum. Í göngunni mun leiðsögumaðurinn kenna þér um jarðfræði, landafræði og sögu svæðisins ásamt því að benda á fallegar ísmyndanir. 

Gildir fyrir tvo.

Útivist - 39.900 kr.

Upplifunin er hluti af Útivist Óskaskríninu

Magn
 

Áhugavert

Eitt af því sem gerir jökla spennandi er að yfirborð og litur jökulsins er síbreytilegur en jöklamyndanir eins og svelgir, sprungur og jökladrýli koma og fara eftir veðri og vindum. 

Gott að vita

Erfiðleikastig: Miðlungserfið

Aldurstakmark: 14 ára

Innifalið: jöklabroddar, ísexi, hjálmur, sigbelti og jeppaskutl að jöklinum

Taka með: Best að vera í gönguskóm með ökklastuðningi og klæða sig eftir veðri ásamt því að taka með nasl og drykk. 

Hægt að leigja gönguskó með ökklastuðningi á 1000kr parið.

Hvar

Brottför frá söluskálanum í Freysnesi, í 5 mínútna akstri frá Skaftafelli. Við erum í 320km fjarlægð frá Reykjavík (4klst keyrsla)

Hvenær

Brottfor er 9:15 eða 13:30 allt árið þegar veður leyfir. 

 

Bókanir

[email protected]

s: 894-1317